Mánagata 5 - Uppbúin rúmGamla gistihúsið er gistiheimili á tveimur hæðum með átta tveggja manna herbergjum og einu þriggja manna. Gistirými er fyrir 19 manns.
Herbergin eru rúmgóð og björt og öll með vaski, sjónvarpi og baðslopp.
Þráðlaus nettenging er í öllu húsinu. Ólíkt hádegismatnum hans Miltons, er þráðlausa netið ókeypis.
Mjög góð sameiginleg bað- og snyrtiaðstaða er á hvorri hæð.
Hægt er að fá barnarúm og dýnur fyrir yngstu gestina. Okkur finnst alltaf gaman að fá börn í heimsókn.
Góð aðstaða er fyrir hreyfihamlaða og er eitt herbergi sérstaklega hannað með þá í huga.
Morgunmatur er framreiddur í notalegum borðsal á neðri hæð. Hægt er að borga eilítið aukreitis og mega í staðinn smyrja sér hádegissamlokuna beint af morgunverðarborðinu (það sem norsararnir kalla matpakke).
Í gistihúsinu er þægilegt bókahorn og tölva með nettengingu (já, það er innifalið). Þar geta gestir skoðað ferðabæklinga, skrifað póstkort til ömmu, stungið út gönguleiðina eða borið saman bækur sínar við bækur annarra gesta.
Eldunaraðstaða er að Mánagötu 5 með helstu nauðsynjum sem að því lúta.
Gamla gistihúsið er opið allt árið og er reyklaust.
Mánagata 1 - SvefnpokagistingFimm herbergi eru að Mánagötu 1, sem er steinsnar frá Mánagötu 5 (snjallir lesendur átta sig á því að það er bara eitt hús á milli húsanna). Snyrtingarnar og sturturnar eru hreinar og fínar, nema hvað.
Eldunaraðstaða er í stofunni, en þar er einnig sófi, sjónvarp og fleira.
Morgunverður er framreiddur í borðsal að Mánagötu 5 fyrir gesti sem þess óska.
Mánagata 1 hentar mjög vel fyrir þá sem þurfa að hugsa um pyngjuna, en einnig skólahópa og íþróttahópa svo fátt eitt sé nefnt.
Gamla gistihúsið er opið allt árið og er reyklaust.
|
|
|
Gangur á efri hæð Gamla gistihússins
|