Gamla gistihúsið
 
Click for English version
Velkomin í Gamla gistihúsið á Ísafirði

Gamla gistihúsið er 2ja stjarna gistiheimili á besta stað í miðbæ Ísafjarðar.

Ísafjörður vinsæll viðkomustaður ferðalanga á leið sinni um firði og dali Vestfjarðakjálkans. Gamla gistihúsið er með allt það sem góð gistiheimili bjóða upp á, hrein og björt herbergi með vaski, mörg baðherbergi, morgunmat, sjónvarp og tölvutengingu. Inni í skáp er meira að segja baðsloppur sem bíður notkunar.

Bæði er boðið upp á gistingu í uppbúnum rúmum (Mánagötu 5) og í svefnpokagistingu (Mánagötu 1). Síðari kosturinn hentar vel skólahópum og íþróttaliðum, sem geta fengið húsið útaf fyrir sig með eldunaraðstöðu og öllu tilheyrandi.

Skoðaðu þjónustukaflann til að fá heildaryfirlit yfir þá þjónustu sem er innifalin og í boði fyrir aukagjald.

Ef þú ert að leita að góðri gistingu á Vestfjörðum, þá er leitinni lokið.

 







Gamla Gistihúsið er meðlimur í verkefninu Veisla að vestanGamla Gistihúsið er tveggja stjarna, skv. flokkun FerðamálastofuGamla gistihúsið er stoltu meðlimur í SAF
Gamla gistihúsið | Mánagötu 5 | 400 Ísafjörður | Sími: 456-4146 / 897-4146 | gistihus@gistihus.is
Gisting á Ísafirði - Gisting á Vestfjörðum - Gistiheimili á Vestfjörðum - Ódýr gisting á Ísafirði